25.8.2007 | 08:43
Púff...
![]() |
Allt á floti í Illinois |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
17.3.2007 | 23:40
Til hamingju Ágúst
Get ekki lýst því hvað ég var ánægð að sjá þessa frétt og eins og svo margir aðrir þá var það fyrsta sem mér datt í hug.... Til hamingju Ágúst... hvað annað er hægt að segja. Þú hefur haldið ótrauður áfram, ekki gefist upp og náð þínu í gegn.
Það vill hins vegar svoleiðis til að ég veit varla hver Ágúst er og myndi satt að segja alls ekki vita það nema út af þessu máli. Það er nefnilega þannig að ef þú ert ein/einn af þeim sem hefur orðið fyrir misnotkun (og það eru ansi margir sem falla í þann hóp því miður) þá gerist það ósjálfrátt að eyrun sperrast þegar um þessi mál er fjallað. Og satt að segja þá finnst manni nóg að sönnunarbyrgðin sé svo erfið að aðeins hluti af málunum sleppi í gegn í beina ákæru og að dómarnir sem afbrotamennirnir fái séu afar stuttir (svo ekki sé sterkara til orða tekið) þó að ekki bætist við að eftir ákveðin tíma þá bara fyrnist málið....
SVO ENN OG AFTUR TIL HAMINGJU EKKI BARA ÁGÚST HELDUR VIÐ ÖLL, ÞETTA ER ÁN EFA SKREF Í ÁTT AÐ AUKNU RÉTTLÆTI
![]() |
Fyrningarfrestur á kynferðisafbrotum gegn börnum afnuminn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
30.1.2007 | 18:17
Það er sko ekki ónýtt...
... að vera með skemmtilegast liðið. Mín reynsla er að skemmtilegt fólk getur komist ansi langt... bara á húmornum, held svei mér þá að það gæti bara átt við Íslendingana líka. Það að hafa gaman af þessu og vera svolítið skemmtilegir getur fleytt þeim langt.
Síðan er ég svartsýnismanneskjan orðin svo bjartsýn að ég er bara farin að halda að Íslendingar geti unnið þennan leik (og þá er nú mikið sagt, held ég hafi spáð þeim tapi í öllum leikjunum nema kannski á móti Áströlum man ekki svo langt aftur). Eftir að hafa horft á leikina (með öðru auganu þar sem ég verð alltaf svo stressuð þegar ég horfi á leik að ég verð að standa reglulega upp og flýja af vettvangi) er ég sannfærð um að við séum með besta markvörðinn, bestu skyttuna, besta leikmanninn, besta þjálfarann og bestu alla hina :-)
En alla vega ÁFRAM ÍSLAND
![]() |
Íslendingar með lakasta en skemmtilegasta liðið |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
29.1.2007 | 18:12
Kannski...
O jæja kannski er LOKSINS eitthvað farið að þokast í þessum málum. Þessi ofuráhersla á að vera grannur er gjörsamlega farin út í öfga og það fyrir lifandis löngu... Ég meina samkvæmt BMI stuðli er óheilbrigt fyrir konur að vera undir 18,5 og þegar stjórnendur tískuvikunnar á Spáni ákváðu að neita fyrirsætum sem voru með lægri stuðul en 18 (takið eftir engu að síður 0,5 lægri en telst heilbrigt) þá kom hver tískufrömuðurinn á fætur öðrum og fordæmdi Spánverjana og sagði að ef þeir vildu endilega nota FEITAR fyrisætur þá væri það þeirra mál en það ætti ekki að neyða aðra til þess....
FEITAR FYRIRSÆTUR sem engu að síður máttu vera 0,5 undir heilbrigðismörkunum... púff spáið í þetta hversu firrtur er hægt að vera. Og svo eru þetta ímyndinar sem ungar stúlkur horfa á og bera sig saman við... Nei bíðið þetta er víst ekki alveg rétt hjá mér... þær bera sig saman við þessar konur EFTIR að það er búið að "fótósjoppa" myndirnar af þeim í strimla... VÁ VÁ VÁ skrítið að ungar stúlkur séu óánægðar með útlitið ekki satt???
Og fyrst ég er nú komin á flug, finnst engum nema mér leiðinlegt að sjá aldrei svo mikið sem eina hrukku (sérstaklega á konum) í sjónvarpinu (þó svo að fólk sé kannski orðið 70 ára eða eldra) það eru flestir (vil ekki segja allir og staðhæfa) orðnir svo strektir að það er ekki nokkur möguleiki á að sjá broshrukku eða bara nokkur merki um að einstaklingurinn sé að eldast eðlilega... Púff húff og snúff... orðin frekar pirruð!
![]() |
Topshop vill ekki ofurgrannar fyrirsætur |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
28.1.2007 | 11:47
Ótrúlegt hvað upp kemur þegar farið er að grafa
Já síðustu vikur hafa sýnt þjóðinni svo ekki er um villst að það er ótrúlegt hvað getur komið upp þegar farið er að grafa. Byrgið sem naut almenns stuðnings og velvildar hjá almenningi vegna starfsemi sinnar (ja eða öllu heldur vegna þeirrar starfsemi sem gefið var út að þar færi fram) er nú á allra vörum og fólk er eiginlega alveg orðlaust, skilur ekki hvernig þetta var hægt. Hvernig gat þessi maður komist upp með þetta í öll þessi ár, misbeytingu á aðstöðu sinni og að fara svona með peningana sem lagðir voru í starfsemina? Já og enginn ábyrgur. Alltaf gott þegar enginn er ábyrgur held að við meðaljónarnir ættum að taka okkur til fyrirmyndar ýmsa áhrifamenn og læra af þeim hvernig við getum fyrrt okur ábyrgð á öllu sme aflaga fer...
Nú hefur þriðja konan komið fram og kært Guðmund og sumir velta fyrir sér hvernig hægt sé að kæra hann fyrir nauðgun þar sem konurnar hafi samþykt það sem fram fór. Satt að segja þá tel ég að það sé minnsta mál. Því spurningin er í hvernig ástandi voru þær þegar þær samþyktu og hver var það sem átti að hjálpa þeim upp úr þeirra fíkn og efla sjálfstraust þeirra en ekki nýta aðstöðu sína til að svala þörfum sínum? Veltum þessu fyrir okkur og veltum einnig fyrir okkur hvað okkur þætti ef einhver þessarra kvenna væri dóttir okkar? Myndum við þá ypta öxlum og segja ja... en hún samþykti?
![]() |
Þriðja nauðgunarkæran gegn Guðmundi Jónssyni |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
25.1.2007 | 23:02
Fræknir Frakkar
![]() |
Frakkar burstuðu Slóvena |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
25.1.2007 | 17:47
Áfram Viktoría
![]() |
Viktoría: Mér fannst ég dvergvaxin |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
23.1.2007 | 21:29
Púff....
![]() |
Tom Cruise er Kristur Vísindakirkjunnar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
22.1.2007 | 18:11
Hjálmar hættur
![]() |
Hjálmar Árnason hættir í stjórnmálum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
21.1.2007 | 17:32
Alltaf gaman júró
![]() |
Þrjú lög áfram í undankeppni Söngvakeppni Sjónvarpsins |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)